Pastaslaufur með hvítlauk og risarækjum

Hráefni
» 400 g pastaslaufur (farfalle)
» 3 l vatn
» 2 tsk. salt
» 1-2 msk. ólífuolía
» 40 stk. risarækjur
» Meðlæti
» 4 stk. hvítlauksrif
» 8 stk. vorlaukur
» 3-4 stk. gulrætur
» 100 g strengjabaunir
» 150 g blandaðir sveppir
» 3-4 stk. tómatar
» 4 stk. skalotlaukar
» 3-4 msk. matarolía
» Ostrusósa
» 4 dl ostrusojasósa
» 1 dl rauðvín, óáfengt
» 6-8 msk. steinselja, söxuð

Fyrir 4

Aðferð

Sjóðið pastaslaufurnar í 10-12 mínútur, skolið vel og kælið. Leggið risarækjurnar í sigtaða hvítlauksolíu í 3-4 tíma fyrir notkun. Snöggsteikið síðan á vel heitri pönnu (1-2 mín.), kryddið með salti og pipar. Blandið pastaslaufunum saman við. Skiptið síðan á diska. Leggið nokkrar risarækjur ofan á og vætið með sósu.

Meðlæti

Sjóðið strengjabaunirnar í 3 mín. í léttsöltu vatni, kælið. Skerið hvítlauk í sneiðar og brúnið lítið eitt. Skerið annað grænmeti í teninga og sneiðar og bætið út á pönnuna ásamt pastaslaufunum.

Ostrusósa

Öllu blandað saman og soðið í 3-4 mínútur. Borið fram heitt.Tortellini með spergilkáli og reyktum laxi

Fyrir 4400 g tortellini, ferskt 2-3 l vatn, létt saltað 1-2 msk. ólífuolía í vatnið Meðlæti 600 g reyktur lax í sneiðum 600 g spergilkál 8 msk. furuhnetur Sósa 300 g reyktur lax 200 g spergilkál 200 g sýrður rjómi 1 dl rjómi 1 dl mjólk

salt og svartur pipar úr kvörnSjóðið pastað í 3 mínútur. Það má síðan kæla - ekki skiptir öllu máli hvort pastað er borið fram heitt eða kalt.

Meðlæti

Reyktu laxasneiðarnar brotnar saman (óreglulega) og lagðar á disk ásamt soðnu spergilkáli (má einnig vera kalt) yfir pastað. Brúnið furuhneturnar á þurri, heitri pönnu og stráið yfir ásamt sósunni.

Sósa

Allt sett í matvinnsluvél og maukað. Kryddað með salti og pipar úr kvörn. Hellt yfir réttinn.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar