Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Tortellini með fyllingu og grænmeti
- Hráefni
- » 500 g fyllt tortellini, ferskt
- » 2-3 l vatn
- » 2 tsk. salt
- » 1-2 msk. ólífuolía í vatnið
- » Meðlæti
- » 3-4 stk. gulrætur
- » 1 stk. kúrbítur
- » 1 stk. paprika, rauð
- » 1 bakki smámaís
- » 4 stk. hvítlauksrif
- » 2 msk. nýr engifer
- » 1 bakki baunablanda, fersk
- » 2 dl ostrusojasósa
- » 2 msk. appelsínumarmelaði
- » 2 dl grænmetisoð (vatn og teningur/kraftur)
- » 1 tsk. kóríanderduft
- » salt og svartur pipar úr kvörn
- » 5 msk. matarolía til steikingar
- » Skraut
- » 6 stk. vorlaukar
Fyrir 4
Aðferð
Sjóðið pastað í 3 mínútur og kælið síðan.
MeðlætiFínsaxið hvítlauk og engifer, steikið í olíu en látið ekki brenna. Skerið gulrætur og kúrbít í þunnar flögur (t.d. með ostaskera eða flysjara). Bætið öðru grænmeti á pönnuna, nema fersku baununum. Bætið síðan ostrusojasósu, marmelaði, grænmetissoði og kóríanderdufti út í og látið sjóða áfram í 1-2 mínútur. Að síðustu er pastanu bætt saman við og látið hitna í gegn. Skipt á diska. Baunablöndunni stráð yfir og vorlauknum, skáskornum í þunnar sneiðar, í kring.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/272/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










