Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Villigrjónablanda með nautahryggssneiðum
- Hráefni
- » 800 g nautahryggssteik/snitzel
- » (í fjórum 200 g steikum)
- » 4 msk. ólífuolía til steikingar
- » 250 g villigrjónablanda (Basmati & Wild frá Tilda)
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 6 dl kjúklingasoð (eða vatn og Knorr-teningur)
- » 4 msk. ólífuolía til steikingar
- » 10 stk. hvítlauksrif
- » 1 stk. vorlaukur
- » 1 bakki baunaspírur
- » 1 stk. gulrót
Fyrir 4
Aðferð
Bankið kjötsneiðarnar varlega. Snöggsteikið síðan í heitri olíu í 2-3 mín. á hvorri hlið og snúið nokkrum sinnum.
Saxið hvítlauk og rauðlauk og annað grænmeti. Hitið ólífuolíu í potti eða á pönnu, léttsteikið hvítlauk, rauðlauk og hrísgrjón (brúnið ekki). Bætið síðan kjúklingasoðinu saman við og látið sjóða í 10 mínútur. Bætið þá öðru grænmeti saman við og blandið vel, látið sjóða í aðrar 10 mínútur. Skiptið síðan grjónablöndunni á diska og leggið steikina yfir.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/273/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira








