Svínakjötsstrimlar með engifer og hrísgrjónum
- Hráefni
- » 600-800 g svínakjötsstrimlar (t.d. úr snitzel)
- » 1 dl sojasósa, sæt
- » 1 dl matarolía
- » 2-3 msk. maizenamjöl
- » olía til djúpsteikingar
- » Hrísgrjónakökur
- » 250 g basmati hrísgrjón
- » 4 msk. matarolía
- » 6 dl kjúklingasoð (1 Knorr-teningur í 1/2 l af vatni)
- » 1-2 stk. skalotlaukur
- » 1 stk. fennikka
- » Meðlæti
- » 100 g sykurbaunir
- » 4 stk. vorlaukar
- » Rósmarínsósa
- » 100 g appelsínumarmelaði
- » 1/2 dl sojasósa
- » 2 dl kjúklingasoð (vatn og teningur)
- » 1 msk. rósmarín
- » börkur af 1/2 appelsínu, rifinn
Fyrir 4
Aðferð
Pískið saman soja og olíu. Leggið svínakjötsstrimlana í löginn og látið standa í 2-3 tíma. Veltið upp úr maizenamjöli og djúpsteikið í 2-3 mínútur. Haldið heitu.
HrísgrjónakökurSkerið lauk og fennikku í strimla. Léttsteikið með hrísgrjónum (brúnið ekki). Bætið kjúklingasoðinu saman við og látið sjóða undir loki í 20 mínútur. Maukið þriðjung af grjónunum í matvinnsluvél, blandið síðan saman við hin grjónin og leggið í skál eða lítið form. Hvolfið á disk og dragið síðan formið/skálina varlega upp.
MeðlætiSjóðið sykurbaunir og vorlauk í léttsöltu vatni eða kjúklingasoði í 1 mínútu. Leggið yfir svínakjötsstrimlana sem settir eru kringum hrísgrjónakökuna með reglulegu millibili.
RósmarínsósaAllt sett yfir til suðu og soðið í 3-4 mínútur. Hellt á milli svínakjötsstrimlana.
HollráðÞennan rétt má einnig pönnusteikja.
Hrísgrjónunum þrýst vel niður í formið og það dregið upp ...
... eftir situr fallega mótuð hrísgrjónakakan.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










