Saffrangrjón með risarækjum og smokkfiski

Hráefni
» 40 stk. risarækjur (með sporði)
» 300 g smokkfiskur
» 3 msk. ólífuolía
» salt og svartur pipar úr kvörn
» Saffrangrjón
» 250 g hrísgrjón
» 6 dl kjúklingasoð (eða vatn og teningar/kraftur)
» 4 stk. bufflaukar
» 1 g saffran
» 4 msk. ólífuolía til steikingar
» Meðlæti
» 8 stk. spergill, grænn
» 1 bakki smámaís
» 100 g sykurbaunir
» 1 stk. gulrót, stór
» 3 msk. ólífuolía til steikingar
» 1 dl kjúklingasoð (vatn og Knorr-teningur)
» Saffransósa
» 2 dl hvítvín, óáfengt
» 1 dl kjúklingasoð (vatn og teningur)
» 3 dl rjómi
» 100 g laukur, saxaður (innan úr bufflauknum)
» 1 g saffran
» salt og pipar úr kvörn

Fyrir 4

Aðferð

Risarækjurnar snöggsteiktar í ólífuolíunni og bragðbættar með salti og pipar úr kvörn. Leggið til hliðar og haldið heitum. Smokkfiskurinn er skorinn endilangt og flattur út. Í hann eru skornar grunnar raufar langsum og þversum (það kemur í veg fyrir að hann herpist saman á pönnunni). Síðan er hann skorinn í 2 cm breiða strimla og steiktur á snarpheitri pönnu í 2 mínútur.

Saffranhrísgrjón

Afhýðið bufflaukana. Skerið síðan ofan af þeim og neðan og þrýstið innmatnum út. Saxið hluta af því (um 100 g) og léttsteikið með hrísgrjónum og saffranþráðum, án þess að brúna. Sama skal gert við smokkfiskinn og risarækjuna. Setjið smokkfisk og bufflauk á pönnuna, bætið soðinu saman við og látið sjóða undir loki í 20 mínútur. Þegar því er lokið eru hrísgrjónin sett ofan í laukana og þeir bornir fram með smokkfisknum, risarækjunum og grænmetinu.

Meðlætið

Sneiðið spergil, skerið smámaís og sykurbaunir í strimla, gulrót í teninga. Allt grænmetið léttsteikt í olíu á pönnu eða potti. Kjúklingasoðinu bætt saman við og soðið í 1-2 mínútur.

Saffransósa

Laukurinn er létt steiktur, ekki brúnaður. Bætið hvítvíni og kjúklingasoði á pönnuna, soðið niður um 3/4. Saffran og rjóma er síðan bætt útí. Þegar rjóminn hefur þykkt sósuna er hún bragðbætt með salti og pipar úr kvörn og síðan sett með skeið í kringum laukana.

Þrýstið innri hluta lauksins út með þumalfingri.

Laukringirnir tilbúnir til eldunar.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar