Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Villihrísgrjón með kjúklingaleggjum
- Hráefni
- » 8 stk. kjúklingaleggir
- » 4 msk. matarolía til steikingar
- » salt og svartur pipar úr kvörn
- » Villihrísgrjón
- » 250 g hrísgrjónablanda (Basmati & Wild frá Tilda)
- » 4 msk. matarolía til steikingar
- » 1 stk. laukur
- » 2 stk. hvítlauksrif
- » 4 stk. bufftómatar
- » 6 dl kjúklingasoð (vatn og Knorr-teningur)
Fyrir 4
Aðferð
Kjúklingaleggirnir brúnaðir í olíunni, kryddaðir með salti og pipar. Flysjið bufftómatana (skerið grunnan kross í þá að ofan og stingið í sjóðandi vatn, þá gengur auðveldlega að ná hýðinu af). Léttsteikið hrísgrjón, lauk og saxaðan hvítlauk í olíu. Bætið síðan kjúklingaleggjum, soði og heilum, flysjuðum tómötum saman við. Látið sjóða undir loki við vægan hita í 20 mínútur. Berið fram í pönnunni.
Skerið grunnan kross í tómatinn ...
... dýfið honum í sjóðandi vatn ...
... og afhýðiðTómaturinn er síðan lagður heill í pönnuna.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/276/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










