Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Hrísgrjón með vorlauk og skelfiski
- Hráefni
- » 250 g hrísgrjón
- » 1 stk. laukur
- » 4 msk. ólífuolía
- » 6 stk. vorlaukar
- » 6 dl kjúklingasoð (vatn og Knorr-teningur)
- » Skelfisksósa
- » 8 stk. humar, skelflettur
- » 40 stk. hörpuskelfiskur
- » 6 stk. hvítlauksrif
- » 1 stk. laukur
- » 4 msk. ólífuolía
- » 2 dl hvítvín, óáfengt
- » 2 dl rjómi
- » 1 dl kjúklingasoð
- » 3 msk. dijon sinnep
Fyrir 4
Aðferð
Léttsteikið hrísgrjón og saxaðan lauk í ólífuolíu. Bætið kjúklingasoði og vorlauk saman við og sjóðið við vægan hita undir loki í 20 mínútur. Hrísgrjónin og skalotlaukurinn léttsteikt í ólífuolíunni.
SkelfisksósaSnöggsteikið skelfisk í ólífuolíunni. Bætið hvítlauk og lauk saman við og steikið áfram í 1-2 mínútur. Leggið til hliðar. Blandið hvítvíni og kjúklingasoði saman og látið sjóða niður um helming. Bætið rjóma og sinnepi saman við og pískið vel saman. Bætið síðan skelfiski út í sósuna og hitið í gegn. Berið fram í skál eða á fati ásamt hrísgrjónunum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/278/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










