Arabísk hrísgrjón með sjávarréttakokteil

Hráefni
» 250 g basmati hrísgrjón
» 3 tsk. arabískt krydd (frá Pottagöldrum)
» 2 stk. laukar
» 2/3 stk. blaðlaukur
» 4 msk. matarolía
» 6 dl kjúklingasoð (2 Knorr-teningar í 1 lítra af vatni)
» 350 g sjávarréttakokteill (fæst tilbúinn, frystur)

Fyrir 4

Aðferð

Skerið lauk í strimla og blaðlauk í sneiðar. Léttsteikið í matarolíu. Bætið síðan hrísgrjónum saman við, brúnið þau ekki. Steikið áfram í eina mínútu. Arabíska kryddinu og kjúklingasoðinu bætt saman við og soðið við vægan hita undir loki í 15 mínútur. Bætið þá sjávarréttakokteilnum saman við og sjóðið í aðrar 5 mín. Borið fram á diskum eða á fati.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar