Hrísgrjón og skelfiskur með piparrót og sinnepsrjóma

Hráefni
» 250 g basmati hrísgrjón
» 1 stk. laukur
» 3 msk. matarolía
» 8 dl kjúklingasoð (vatn og teningur)
» 1 msk. piparrót (fæst maukuð í pökkum)
» 3 msk. dijon sinnep
» 2 dl rjómi
» 6 msk. graslaukur
» 400 g kínahreðkur
» Steiktur hörpuskelfiskur
» 800-1000 g hörpuskelfiskur
» 3-4 msk. heilhveiti
» 6 msk. olía til steikingar
» 2-3 msk. smjör til steikingar
» salt og pipar
» Djúpsteikt piparrót
» 50-60 g piparrót í strimlum (lítill biti eða 1 stk., fæst í litlum stykkjum)
» olía til djúpsteikingar

Fyrir 4

Aðferð

Saxið lauk og léttsteikið með hrísgrjónum og piparrót í olíu. Bætið kjúklingasoðinu út í og látið sjóða undir loki í 10 mín. Að því loknu er rjómanum bætt við, og soðið í aðrar 10 mín., einnig undir loki. Hrærið reglulega í blöndunni. Þegar hrísgrjónin eru fullelduð er sinnepinu blandað saman við þau. Fyllið 8 cm. form eða víða bolla með hrísgrjónum, pressið vel niður. Hvolfið á hvern disk, stráið saxaðri kínahreðku- og graslauksblöndu í kringum formið og dragið það upp af grjónunum.

Steiktur hörpuskelfiskur

Höpuskelfisknum er velt upp úr heilhveitinu, bragðbætið með salti og pipar úr kvörn. Hitið olíu og smjör á pönnu og snöggsteikið í 1-2 mínútur. Skelfisknum er síðan raðað í kringum hrísgrjónakökuna.

Djúpsteikt piparrót

Skerið piparrótina í strimla. Djúpsteikið þar til hún er stökk. Látið feitina renna af á smjörpappír eða servíettu og leggið síðan yfir hrísgrjónakökuna þegar rétturinn er borinn fram.

Hollráð

Ef djúpsteikingarpottur er ekki fyrir hendi má djúpsteikja í venjulegri steikarpönnu. Hafið hana hálffulla af olíu og steikið í henni vel heitri. Farið varlega - brennandi heit feiti er hættuleg!

Meðlætinu stráð í kringum hrísgrjónakökuna ...

... áður en formið er dregið upp.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar