Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Græn hrísgrjónakaka á grænni sósu
- Hráefni
- » 1 stk. blaðlaukur, græni hlutinn
- » 1 stk. laukur, meðalstór
- » 1 stk. fennikka
- » 200 g spínat (frosið)
- » 300 g basmati hrísgrjón (risotto)
- » 4 msk. matarolía
- » 8 dl grænmetissoð (vatn og Knorr-teningur)
- » Steinselju- og graslaukssósa
- » 40 g graslaukur (2 pottar)
- » 30 g steinselja, fersk (1 búnt)
- » 2 stk. eggjarauður
- » 1 dl hvítvín, óáfengt
- » 1/2 dl hvítvínsedik
- » 100 g rjómaostur
- » Meðlæti
- » 4 stk. vorlaukur
- » 4 stk. grænn spergill
- » 4-5 dl vatn
- » 1 tsk. salt
Fyrir 4
Aðferð
Skerið grænmetið í strimla og léttsteikið í olíunni í 1-2 mínútur. Hrísgrjónum og grænmetissoði bætt saman við og soðið við hæga suðu í 25 mín. Takið helming grjónanna og maukið í matvinnsluvél. Blandið maukinu saman við hinn helming hrísgrjónanna. Setjið í víða bolla eða smáskálar, pressið grjónin vel niður og hvolfið á miðja diska. Dragið skálarnar/bollana upp, svo hrísgrjónakakan sitji eftir.
Steinselju- og graslaukssósa.
Allt sett í matvinnsluvél og maukað í 1 mín. Sósunni er svo hellt í kringum hrísgrjónakökuna.
MeðlætiSneiðið neðan af aspas og vorlauk. Snyrtið. Sjóðið aspas í 3 mínútur í léttsöltu vatni og vorlauk í 2 mínútur. Leggið ofan á hrísgrjónakökuna þegar hún er borin fram.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/281/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










