Hvítlaufsgrjón með beikoni og sveppum

Hráefni
» 4 msk. ólífuolía
» 250 g basmati hrísgrjón
» 1 stk. laukur
» 4 stk. hvítlauksrif
» 4 stk. hvítlaufssalat (endívur)
» 6 dl kjúklingsoð (vatn og teningar eða kraftur)
» Sósa og meðlæti
» 300 g beikon
» 200 g kastaníusveppir
» 3 msk. ólífuolía
» 1 dl kjúklingasoð (eða vatn og kraftur eða teningur)
» 4 dl rjómi
» 2 msk. dijon sinnep
» 4 msk. kapers
» 1 dós fetaostur, kryddaður

Fyrir 4

Aðferð

Saxið lauk og sneiðið hvítlauk, léttsteikið með hrísgrjónum í ólífuolíunni, brúnið ekki. Bætið soðinu saman við ásamt hvítlaufssalatinu og sjóðið við vægan hita undir loki í 20 mínútur. Borið fram á diskum eða á fati.

Sósa og meðlæti

Léttsteikið beikon og sneidda sveppi í olíu í 1-2 mínútur. Bætið kjúklingasoði og rjóma saman við, þykkið með sinnepinu. Bætið að síðustu kapers og fetaosti út í. Borið fram í skál eða diskum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar