Basmatigrjón með blönduðum sveppum

Hráefni
» 250 g basmati hrísgrjón
» 1 stk. rauðlaukur
» 6 dl kjúklingasoð (vatn og teningur/kraftur)
» 4 msk. matarolía
» Steiktir sveppir með hvítlauk
» 200-300 g blandaðir sveppir (fást tilbúnir í bökkum í grænmetisborði Nýkaups)
» 2 stk. hvítlauksrif
» 5 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar úr kvörn
» Sinnepssósa
» 4 msk. dijon sinnep
» 1 dl hvítvínsedik
» 2 tsk. Worchestershiresósa
» 1 stk. rauðlaukur
» 1 msk. hunang

Fyrir 4

Aðferð

Skerið rauðlauk í strimla, léttsteikið ásamt hrísgrjónum í olíunni, brúnið ekki. Bætið kjúklingasoðinu saman við og sjóðið undir loki í 20 mínútur. Skiptið í fjögur form eða víða bolla, pressið grjónin niður í þá. Hvolfið formunum á diska og dragið upp af hrísgrjónakökunum.

Steiktir sveppir með hvítlauk

Sneiðið sveppina og steikið í olíu ásamt hvítlauknum, kryddið með salti og pipar. Dreifið blöndunni í kringum hrísgrjónakökurnar og ofan á þær.

Sinnepssósa

Pískið saman hunang, sinnep, edik, fínsaxaðan lauk og Worchestershiresósu og hellið yfir sveppina þegar rétturinn er borinn fram.

Dragið formið varlega upp af hrísgrjónakökunni.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar