Villigrjónakaka með tómat og parmesan

Hráefni
» 250 g hrísgrjónablanda (Basmati & Wild frá Tilda)
» 1 stk. laukur
» 4 dl kjúklingsoð (vatn og Knorr-teningur)
» 1 dós tómatar, niðursoðnir (400 g)
» 1 tsk. timian
» 1 tsk. rósmarín
» 2 stk. hvítlauksrif
» 4 msk. matarolía
» Meðlæti
» 4 msk. matarolía
» 100 g spínat, ferskt (stilkurinn slitinn af)
» 1 stk. rauðlaukur
» 1 stk. bufftómatur
» salt og svartur pipar úr kvörn
» 60 g parmesanostur, rifinn
» Rauðvínsedikssósa (vinaigrette)
» 1 msk. púðursykur
» 1 stk. laukur, saxaður
» 2 msk. balsamedik
» 1 dl rauðvínsedik
» 1 dl matarolía
» 2 stk. tómatar

Fyrir 4

Aðferð

Léttsteikið hrísgrjón í olíu, bætið söxuðum lauk, hvítlauk, timian, niðursoðnum tómötum, rósmarín og kjúklingasoði saman við. Sjóðið í 20 mín. við vægan hita. Maukið helminginn af grjónunum í matvinnsluvél og blandið síðan saman við grjónin í pottinum. Skiptið í fjögur form eða víða bolla, þjappið og hvolfið í eldfast form. Dragið formin upp.

Meðlæti

Brúnið saxaðan rauðlauk og spínat í olíu, kryddið varlega með salti og pipar. Skerið bufftómatinn í fjóra hluta og leggið eina bufftómatsneið á hverja hrísgrjónaköku, spínat og saxaðan rauðlauk þar ofan á, stráið parmesanosti yfir. Ofnbakið við 180°C í 3-4 mín. eða þar til osturinn er fallega gullinn.

Rauðvínsedikssósa (vinaigrette)

Skerið tómatana í strimla. Allt hráefni er pískað saman að undanskildum tómatstrimlunum. Þeim er bætt út í sósuna eftir á. Hellið sósunni yfir rétt áður en rétturinn er borinn fram.

Helmingur soðnu hrísgrjónanna maukaðar í matvinnsluvél.

Hér má sjá allt ferlið eftir að hrísgrjónablandan er komin í form.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar