Hrísgjón með mango chutney og grænmeti

Hráefni
» 250 g basmati hrísgrjón
» 1 stk. rauðlaukur
» 6 dl grænmetissoð (vatn og Knorr-teningur)
» salt og pipar úr kvörn
» 4 msk. ólífuolía til steikingar
» Meðlæti
» 8 stk. grænn aspas
» 1 bakki baunir, spíraðar
» 3 stk. paprika, blandaðir litir
» 1 stk. kúrbítur (zucchini), grænn
» 1 stk. eggaldin
» 4 stk. belgbaunir
» 1 tsk. estragon
» 1 dl mango chutney, sterkt
» 1/2 dl matarolía til steikingar
» Djúpsteikt eggaldin
» 1 stk. eggaldin
» olía til djúpsteikingar
» salt

Fyrir 4

Aðferð

Léttsteikið hrísgrjón og saxaðan rauðlauk í olíu, brúnið ekki. Bætið soðinu saman við og sjóðið við vægan hita í 20 mínútur.

Meðlæti

Skerið neðan af aspasnum og flysjið neðst. Saxið annað grænmeti og steikið í olíu þar til það er mjúkt. Bætið þá kryddi og mango chutney saman við. Blandið síðan hrísgrjónunum saman við grænmetið í skál.

Djúpsteikt eggaldin

Sneiðið aldinið þunnt og djúpsteikið þar til það er fallega gullið á litinn. Skerið í stykki, saltið og raðið ofan á grænmetis- og hrísgrjónablönduna.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar