Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Sesamhrísgrjón með kjúklingaleggjum
- Hráefni
- » 12 stk. kjúklingaleggir
- » 6 msk. maizenamjöl
- » 12 msk. sesamfræ
- » 3 dl sojasósa, sæt
- » 4 msk. ólífuolía
- » Hrísgrjónablanda
- » 250 g villigrjónablanda (Basmati & Wild frá Tilda)
- » 6 dl kjúklingasoð
- » 1 stk. laukur
- » 4 msk. matarolía
- » Djúpsteikt grænmeti
- » 2 stk. rauðrófur
- » 1-2 stk. kúrbítur (zucchini)
- » 1/2 stk. blaðlaukur
- » olía til djúpsteikingar
Fyrir 4
Aðferð
Pískið saman ólífuolíu, maizenamjöl, sæta sojasósu og sesamfræ. Veltið kjúklingaleggjunum upp úr blöndunni og ofnsteikið við 200°C í 15 mín. Berið fram með hrísgrjónablöndu, djúpsteiktu grænmeti og sætri sojasósu.
HrísgrjónablandaLéttsteikið hrísgrjón og saxaðan lauk í olíu, brúnið ekki. Bætið soðinu saman við og sjóðið við vægan hita undir loki í 20 mínútur.
Djúpsteikt grænmetiSneiðið rauðrófur og kúrbít þunnt, blaðlaukinn í grófa strimla. Djúpsteikið hverja grænmetistegund fyrir sig. Grænmetið sett á stykki eftir djúpsteikingu og olían látin drjúpa af því. Salti er stráð yfir grænmetið og því blandað saman. Það er svo sett á hrísgrjónablönduna á diskum og kjúklingaleggjum raðað ofan á með jöfnu millibili.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/286/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









