Hrísgrjón með portobello- og kastaníusveppum

Hráefni
» 2 stk. portobello sveppir
» 250 g kastaníusveppir
» 2 stk. hvítlauksrif, söxuð (stór)
» 6 msk. steinselja, söxuð
» 100 g smjör
» 2 dl kjúklingasoð (vatn og Knorr-teningur)
» salt og svartur pipar úr kvörn
» Steikt hrísgrjón
» 250 g basmati hrísgrjón
» 4 msk. ólífuolía
» 1 stk. laukur
» 6 dl kjúklingasoð
» 2 dl rjómi
» salt og svartur pipar úr kvörn

Fyrir 4

Aðferð

Bræðið smjörið, bætið söxuðum hvítlauk og steinselju saman við. Leggið sveppina í eldfast mót og hellið smjörinu yfir. Kryddið með salti og pipar. Hellið kjúklingsoðinu yfir. Ofnbakið við 200°C í 15-20 mínútur. Ausið yfir sveppina á 5 mín. fresti.

Steikt hrísgrjón

Léttsteikið hrísgrjón og saxaðan lauk í olíu, brúnið ekki. Bætið soði og rjóma saman við og sjóðið undir loki við vægan hita í 20 mín. Hrærið í með sleif af og til. Skiptið hrísgrjónunum á diska, leggið portobello-sveppina ofan á grjónin en kastaníusveppina i kring. Hellið sveppasoðinu í kringum hrísgrjónin þegar rétturinn er borinn fram.

Kjúklingasoði hellt yfir sveppina í eldföstu móti.

Ekki gleyma að ausa soði yfir sveppina á meðan þeir eru eldaðir.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar