Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Grænar linsubaunir með beikoni og svínakjötsbitum
- Hráefni
- » 600 g grænar linsubaunir
- » 2-3 stk. lárviðarlauf
- » 1 tsk. salt
- » 1 l vatn
- » 600-800 g svínakjöt, t.d. gúllas
- » 200 g beikon
- » 12 stk. spergill, grænn
- » 2 bakkar smámaís
- » 12 stk. belgbaunir
- » 6 stk. hvítlauksrif
- » 6 msk. ólífuolía til steikingar
- » 1-2 msk. smjör
- » salt og svartur pipar úr kvörn
Fyrir 4
Aðferð
Sjóðið linsubaunirnar í léttsöltu vatni í 30 mínútur - setjið tvö lárviðarlauf út í suðuvatnið.
Skerið belgbaunir í grófa bita, saxið hvítlauksrif, kljúfið smámaís. Hitið ólífuolíuna og snöggsteikið beikon og svínakjötsbitana. Bætið grænmeti á pönnuna ásamt hvítlauk og steikið í 2-3 mínútur. Bætið síðan linsubaunum saman við, kryddið með salti og pipar og hitið vel í gegn. Að síðustu er 1-2 msk. af smjöri bætt á pönnuna.
Skiptið á diska eða berið fram í pönnunni.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/288/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










