Blandaðar baunir með karrýpasta og grænmeti

Hráefni
» 300 g augnbaunir, útvatnaðar
» 300 g mungbaunir, útvatnaðar
» Steikt grænmeti
» 1 stk. fennikka
» 1 stk. hvítlaufssalat
» 1/2 stk. blaðlaukur
» 200 g sveppir
» 1 stk. kúrbítur (zucchini)
» 1/2 dl ólífuolía til steikingar
» salt og pipar úr kvörn
» Mango- og karrýsósa
» 2 msk. karrýpasta
» 1/2 dl kjúklingasoð
» 1 msk. kóríanderduft
» 5 msk. graslaukur
» 4 msk. síróp (Maple Syrup)
» 6 msk. mango chutney
» maizenamjöl eða sósujafnari til þykkingar

Fyrir 4 - 6

Aðferð

Skolið baunirnar vel, leggið í bleyti og sjóðið í kjúklinga- eða grænmetissoði (sbr. töflu að neðan). Sjóða má saman þær baunir sem þurfa sama suðutíma. Kælið í rennandi vatni og blandið saman.

Steikt grænmeti

Saxið grænmetið - fennikku í sneiðar, blaðlauk og hvítlaufssalat í sneiðar eftir endilöngu. Hitið olíuna á pönnu og snöggsteikið grænmetið. Kryddið með salti og pipar.

Mango- og karrýsósa

Baununum blandað saman við grænmetið og öllu hráefni í sósuna einnig. Sjóðið í 4-5 mín. við vægan hita. Þykkið með maizenamjöli.
Borið fram í skál.

Baunir í bleyti og suðu

Hægt er að sjóða baunirnar deginum áður.

Viðmiðunartafla um útvötnun og suðutíma bauna:

adukibaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 45 mín.
hvítar baunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 45 mín.
augnbaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 1 klst.
mungbaunir í bleyti í 8 klst., sjóðið í 1 klst.
kjúklingabaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 1 klst.
smjörbaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 1-1/2 klst.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar