Blandaðar baunir og ostar

Hráefni
» 150 g hvítar baunir, útvatnaðar
» 150 g adukibaunir, útvatnaðar
» Ostar
» 500 g blandaðir ostar, t.d.:
» Stóri Dímon
» Dalakollur
» gráðaostur
» hvítlauks- og basilostur
» aðrir eftirlætisostar
» Rifsberjasósa
» 150 g rifsber, fersk
» 1 stk. hvítlauksrif
» 1 msk. sojasósa, sæt
» 1 dl hvítvínsedik
» 1 dl matarolía
» 1 tsk. timian, þurrkað

Fyrir 4

Aðferð

Leggið baunirnar í bleyti og sjóðið síðan í kjúklinga- eða grænmetissoði (sjá töflu að neðan). Sjóða má saman baunir sem þurfa jafn langa suðu. Skolið síðan í köldu, rennandi vatni, þerrið og setjið á diska. Skerið ostana í bita og leggið á baunirnar.

Rifsberjasósa

Blandið öllu saman í matvinnsluvél. Berið fram strax - hellið yfir baunirnar.

Hollráð

Ekkert mælir gegn því að nota aðra osta - allt eftir smekk hvers og eins.

Baunir í bleyti og suðu

Hægt er að sjóða baunirnar deginum áður.

Viðmiðunartafla um útvötnun og suðutíma bauna:

adukibaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 45 mín.
hvítar baunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 45 mín.
augnbaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 1 klst.
mungbaunir í bleyti í 8 klst., sjóðið í 1 klst.
kjúklingabaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 1 klst.
smjörbaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 1-1/2 klst.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar