Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Blandaðar baunir með hvítlaukssniglum
- Hráefni
- » 100 g kjúklingabaunir, útvatnaðar
- » 100 g adukibaunir, útvatnaðar
- » 1/2 dl ólífuolía
- » 150 g smjör
- » 5 msk. steinselja, söxuð
- » 1 dl grænmetissoð (vatn og teningur)
- » 1 dl mysa
- » 2 stk. hvítlauksrif í sneiðum (stór)
- » 2 stk. skalotlaukur
- » salt og svartur pipar úr kvörn
- » Hvítlaukssniglar
- » 48 stk. hvítlaukssniglar í skel (12 í pakkningu)
Fyrir 4
Aðferð
Sjóðið baunirnar í léttsöltu vatni skv. töflu að neðan. Kælið í köldu, rennandi vatni.
Léttbrúnið smjörið á pönnu, bætið síðan ólífuolíu saman við. Snöggsteikið baunirnar ásamt söxuðum hvítlauk og skalotlauk. Stráið steinselju yfir. Bætið mysu og grænmetissoði saman við. Kryddið með salti og nýmöluðum pipar.
HvítlaukssniglarBakið sniglana í 12 mín. við 200°C. Skiptið á diska og leggið 12 snigla á hvern disk.
Baunir í bleyti og suðuaugnbaunir í bleyti í 12 klst.
sjóðið í 1 klst.
kjúklingabaunir í bleyti í 12 klst.
sjóðið í 1 klst.
adukibaunir í bleyti í 12 klst.
sjóðið í 1 klst.
smjörbaunir í bleyti í 12 klst.
sjóðið í 1-1/2 klst.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/292/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










