Ostgratineraðar baunir

Hráefni
» 150 g augnbaunir, útvatnaðar
» 150 g kjúklingabaunir, útvatnaðar
» 3 stk. portobellosveppir
» 1 stk. laukur
» 6 stk. hvítlauksrif
» 2 msk. ólífuolía
» 2 msk. smjör
» 1 dl kjúklingasoð
» 1/2 l rjómi
» 4 msk. sinnep, sterkt
» 100 g mozzarellaostur

Fyrir 4

Aðferð

Útvatnaðar baunir soðnar í léttsöltu vatni og síðan kældar undir köldu, rennandi vatni. Óhætt er að sjóða saman baunir sem þurfa jafn langan suðutíma.

Léttbrúnið smjörið á pönnu, bætið olíunni saman við. Saxið skalotlauk og hvítlauk, skerið portobello-sveppina í teninga. Steikið á pönnunni, bætið baununum saman við og því næst kjúklingasoði og rjóma. Sinnepið hrært saman við uns sósan þykknar.

Setjið í eldfast mót, stráið mozzarellaosti yfir og stingið undir ofngrillið þar til osturinn hefur fengið fallega gullinbrúnan lit.

Baunir í bleyti og suðu

Hægt er að sjóða baunirnar deginum áður.

Viðmiðunartafla um útvötnun og suðutíma bauna:

adukibaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 45 mín.
hvítar baunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 45 mín.
augnbaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 1 klst.
mungbaunir í bleyti í 8 klst., sjóðið í 1 klst.
kjúklingabaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 1 klst.
smjörbaunir í bleyti í 12 klst., sjóðið í 1-1/2 klst.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar