Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Kúskús með grænmetisteningum
- Hráefni
- » 250 g kúskús
- » 1/2 l grænmetissoð, sjóðandi heitt (1 Knorr-teningur og vatn)
- » Steiktir grænmetisteningar
- » 2 stk. kúrbítur (zucchini)
- » 2 stk. paprika, blandaðir litir
- » 1 stk. eggaldin
- » 3 msk. hvítlaukur, saxaður
- » 3 msk. basil, ferskt
- » 1 dl grænmetissoð
- » 4 dl tómatar, niðursoðnir
- » 1 dl ólífuolía til steikingar
- » salt og pipar úr kvörn
Fyrir 4
Aðferð
Hellið sjóðandi heitu grænmetissoði yfir kúskús í skál og hrærið í annað slagið í 12 mínútur. Skiptið í háa hrauka á diskum svo hægt sé að raða grænmeti í kringum.
Steiktir grænmetisteningarSaxið grænmetið og snöggsteikið í olíunni, bætið kryddi, soði og niðursoðnum tómötum saman við. Sjóðið við vægan hita í 5-7 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar. Setjið nokkrar skeiðar í kringum kúskús hraukana.
HollráðGott er að bera djúpsteikt basil fram með þessum rétti. Þá eru 2-3 ferskar basilgreinar djúpsteiktar í heitri olíu. Látið drjúpa af þeim á handþurrku eða stykki og leggið ofan á réttinn þegar hann er borinn fram.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/294/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










