Kúskús með pestó, vorlauk og grænum spergli

Hráefni
» 250 g kúskús (cous-cous)
» 1/2 l grænmetissoð, sjóðandi heitt (1 Knorr-teningur í 1/2 lítra af vatni)
» 4 msk. pestó, grænt
» Meðlæti
» 16 stk. spergill, grænn
» 16 stk. spergill, hvítur
» 6-8 msk. furuhnetur

Fyrir 4

Aðferð

Hellið sjóðandi heitu grænmetissoði yfir kúskús í skál og hrærið af og til í 12 mínútur. Pestó hrært saman við. Skiptið á diska, leggið soðinn spergil ofan á og örlítið meira kúskús þar ofan á. Skreytið með pönnusteiktum hnetum og djúpsteiktu basil.

Meðlæti

Skerið neðan af sperglinum og snyrtið. Sjóðið í léttsöltu vatni, grænan spergil í 3-4 mín., hvítan í 4-5 mín. Léttbrúnið furuhneturnar á heitri, þurri pönnu.

Hollráð

Gott er að bera djúpsteikt basil fram með þessum rétti. Þá eru 2-3 ferskar basilgreinar djúpsteiktar í heitri olíu. Látið drjúpa af þeim á handþurrku eða stykki og leggið ofan á réttinn þegar hann er borinn fram.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar