Steikt tófú með hvítlaufssalati og grænmetisstrimlum

Hráefni
» 750 g tófú
» 1/2 dl ólífuolía til steikingar
» 3-4 msk. maizenamjöl
» Steikt hvítlaufssalat
» 1 stk. paparika, orange
» 2 stk. gulrætur
» 8 stk. vorlaukar
» 3 stk. hvítlaufssalat
» 6 msk. graskersfræ
» 6 msk. graslaukur
» 4 msk. matarolía til steikingar
» salt og pipar úr kvörn
» Epla- og hunangssósa
» 1 stk. epli
» 1 tsk. kóríanderfræ
» 1 msk. rósapipar
» 2 msk. Worchestershiresósa
» 3 dl grænmetissoð (vatn og 1/2 Knorr-teningur)
» 2 dl hvítvín, óáfengt
» 2 msk. sítrónusafi
» 1 msk. hunang

Fyrir 4

Aðferð

Skerið tófú-ið þvert í sex jafna bita og hvern bita aftur í horn. Veltið upp úr maizenamjöli og steikið í olíu. Kryddið með salti og pipar. Haldið heitu.

Steikt hvítlaufssalat

Skerið grænmetið í strimla og steikið í olíunni. Bragðbætið með salti og pipar. Setjið á miðja diska og raðið tófú-bitunum í kring. Brúnið graskersfræin á heitri, þurri pönnu og stráið yfir réttinn ásamt söxuðum graslauk.

Epla- og hunangssósa

Saxið eplið smátt eða rífið, blandið öllu saman og sjóðið niður um helming. Berið fram með tófú og hvítlaufssalati.

Tófú heilt, skorið í ferninga og síðan horn í horn.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar