Smjörbaunir með ítalskri sósu

Hráefni
» 1/2 stk. seljurót
» 1/2 stk. bufflaukur
» 1 stk. paprika, rauð (eða blanda af fleiri litum)
» 1/2 stk. fennikka
» 4 stk. vorlaukar
» 1 stk. gulrót
» 1 stk. grænmetisteningur (Knorr)
» 1/2 l vatn
» 4-5 msk. tómatmauk (puré)
» 1/2 dós niðursoðnir tómatar (200 g)
» 4 stk. lárviðarlauf
» 4 msk. pestó, grænt
» 1/2 -1 dl ólífuolía
» Meðlæti
» 250 g smjörbaunir (útvatnaðar í 12 klst., soðnar í 1-1/2 klst.)
» 1 stk. rauðlaukur
» 4 stk. hvítlauksrif
» 6 msk. parmesanostur
» 3-4 msk. ólífuolía til steikingar
» olía til djúpsteikingar

Fyrir 6

Aðferð

Skerið grænmetið í strimla og teninga. Brúnið síðan í ólífuolíu. Bætið vatni, grænmetiskrafti, tómatmauki, niðursoðnum tómötum, pestó og lárviðarlaufum saman við. Látið sjóða við vægan hita í 25 mín. og færið þá í eldfast mót til að bera fram í.

Meðlæti

Snöggsteikið baunirnar með öðru, kryddið með salti og pipar úr kvörn. Setjið ofan á réttinn í fatinu, stráið parmesanosti yfir. Stingið undir grillið í ofninum þar til osturinn fær gullinn lit. Gott er að láta fatið standa í 10 mín. áður en rétturinn er borinn fram.

Hollráð

Ekkert mælir gegn því að nota fleiri tegundir af baunum, 2-4 teg. eða jafnvel fleiri. Þá er gott að djúpsteikja 2-3 risahvítlauksrif í strimlum og setja ofan á réttinn þegar hann er borinn fram. Risahvítlaukurinn er bragðminni en sá venjulegi, gefur minni keim - og finnst síður á andardrætti fólks!

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar