Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Reyktur kinnfiskur með gráðaostasósu
- Hráefni
- » 16 stk. reyktur kinnfiskur
- » 4 stk. vorlaukur
- » Gráðaostasósa
- » 2 stk. risahvítlauksrif
- » 1 stk. laukur
- » 200 g sveppir
- » 3-4 msk. ólífuolía
- » 1 dl hvítvín, óáfengt
- » 1 dl kjúklingasoð (vatn og Knorr-teningur)
- » 100 g gráðaostur
- » 3 dl rjómi
Fyrir 4
Aðferð
Skerið hvítlauk og sveppi í sneiðar, lauk í strimla. Léttsteikið í olíunni. Bætið hvítvíni og kjúklingasoði saman við, sjóðið niður um helming. Bætið þá rjóma og gráðaosti á pönnuna. Þegar sósan fer að þykkna er kinnfisknum bætt út í og soðið áfram við vægan hita í 4-5 mínútur. Vorlaukurinn soðinn í léttsöltu vatni í 2-3 mín. og settur ofan á fiskinn þegar rétturinn er borinn fram.
Annað meðlætiGróft brauð hentar vel með þessum skemmtilega rétti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/309/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










