Risarækjur og smokkfiskur með papriku- og kóríandersósu

Hráefni
» 12 stk. risarækjur
» 1 stk. smokkfiskur (heill bolur)
» 4 stk. belgbaunir
» 1 bakki baunaspírur
» 3 msk. ólífuolía
» salt og pipar úr kvörn
» Papriku- og kóríandersósa
» 2 msk. chilisósa
» 1 stk. kjúklingteningur (Knorr)
» 1 stk. paprika, rauð
» 1 msk. engifer, ferskur
» 2 dl sojasósa, sæt
» 3 msk. tómatsósa
» 4 msk. kóríanderlauf, söxuð

Fyrir 4

Aðferð

Kljúfið smokkfiskinn eftir endilöngu, fletjið út og hreinsið. Skerið í hann grunnar rákir þvers og kruss, síðan í 1 cm. breiða strimla langsum. Brúnið í snarpheitri olíu, bætið þá risarækjum, belgbaunum og baunaspírum saman við og steikið í 1-2 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar. Borið fram með papriku- og kóríandersósu.

Papriku- og kóríandersósa

Byrjið á að baka papriku í 200°C heitum ofni þar til að húðin byrjar að brenna. Þá er paprikan flysjuð og kjarninn fjarlægður úr henni. Maukið síðan paprikuna ásamt öðru hráefni (nema kóríanderlaufum), setjið í pott og sjóðið við vægan hita í 10 mínútur. Fleytið ofan af sósunni og bætið kóríanderlaufunum saman við.

Annað meðlæti

Berið fram með grófu brauði.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar