Kjúklinga- og grænmetissúpa með pestó og fennikkufræjum

Hráefni
» 1 stk. rauðlaukur
» 1 stk. gulrót, meðalstór
» 1/2 stk. seljurót
» 8 stk. hvítlaukrif
» 1 stk. kúrbítur (zucchini)
» 2 stk. paprika, t.d. rauð og græn
» 1/2 dl ólífuolía til steikingar
» 4 msk. tómatmauk (puré)
» 400 g tómatar, niðursoðnir
» 4 stk. lárviðarlauf
» 4 msk. fennikkufræ
» 1 msk. timian
» 1 dl pesto
» 2 stk. kjúklingateningar (Knorr)
» 1 l vatn
» 400 g kjúklingabringur
» 4 msk. ólífuolía til steikingar

Fyrir 4 - 6

Aðferð

Skerið grænmetið í teninga, léttbrúnið á pönnu (í skömmtum ef þarf), bragðbætið með salti og pipar. Snöggsteikið kjúklingakjötið og bragðbætið með salti og pipar. Skerið það svo í teninga og bætið út í súpuna ásamt öðrum efnum. Sjóðið við hæga suðu í 30 mínútur. Fleytið ofan af súpunni meðan á suðunni stendur og látið hana svo standa í 5-10 mín. áður en hún er borin fram.

Hollráð

Berið gjarnan fram með grófu brauði. Með því að auka örlítið við uppskriftina getur þetta sem best verið prýðilegur aðalréttur.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar