Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Reykt laxarúlla með myntu- og agúrkusósu
- Hráefni
- » 500-600 g reyktur lax í sneiðum (2-3 sneiðar á mann)
- » Ostafylling
- » 200 g rjómaostur
- » 1-2 msk. mjólk
- » 14 stk. myntulauf
- » salt og pipar
- » plastfilma og álpappír
- » Agúrkusósa
- » 1 stk. agúrka
- » 20 stk. myntulauf
- » 6 msk. graslaukur
- » 1 stk. kjúklingateningur (Knorr)
- » 100 g rækjur
- » 1 msk. sítrónusafi
- » salt og pipar
Fyrir 4
Aðferð
Leggið laxasneiðarnar á plastfilmu. Smyrjið ostafyllingunni ofan á, rúllið upp og pakkið inn í álpappír. Geymið í kæli í 5-6 klst. Skerið þá af endunum, flettið upp og setjið á diska. Berið fram með agúrkusósunni.
OstafyllingHrærið vel saman (eða maukið) rjómaost, mjólk og myntulauf. Smyrjið á laxasneiðarnar.
AgúrkusósaFlysjið agúrkuna og fjarlægið kjarnann. Blandið öllu saman í matvinnsluvél og maukið. Berið fram með laxasneiðunum.
Annað meðlætiBerið fram með ristuðu brauði. Þessar rúllur henta einnig vel í kalt borð.
Sneiðar af reyktum laxi lagðar á plastfilmu.
Ostinum smurt á sneiðarnar.
Rúllið upp ...
... og vefjið síðan inn í álpappír. Kælið.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/315/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









