Sniglabökur með hvítlauksmauki

Hráefni
» 400 g smjördeig, skipt í fernt
» útstungujárn 8 cm og form
» olía til að smyrja formin að innan
» Kjúklingafars
» 100 g kjúklingabringa
» 1 stk. eggjahvíta
» 1 dl rjómi
» Sniglafylling
» 24 stk. sniglar
» 1 stk. laukur
» 100 g spínat, ferskt eða frosið
» 6 stk. hvítlauksrif
» 3-4 msk. ólífuolía til steikingar
» salt og svartur pipar úr kvörn
» 60 g mozzarellaostur (1/2 bréf)
» Hvítlauksmauk
» 12 stk. hvítlauksrif
» 1 stk. laukur
» 3 msk. ólífuolía
» 4 dl kjúklingasoð (vatn og 1 Knorr-teningur)
» 1 dl hvítvín, óáfengt
» 5 dl rjómi
» 50 g smjör
» 4-5 msk. steinselja, fersk, söxuð

Fyrir 4

Aðferð

Smjördeigið flatt út um helming á breiddina (fæst í 400 g pakkningum), stungið út með 8 cm. útstungujárni og sett í smurð formin. Hálffyllið með kjúklingafarsinu og fyllið síðan með sniglum og sniglafyllingunni. Bakið við 180°C í 30 mínútur. Berið fram með sósunni.

Kjúklingafars

Maukið kjúklingakjötið í matvinnsluvél ásamt eggjahvítu. Bætið rjóma saman við ásamt salti og pipar. Þeytið þar til farsið fer að þykkna.

Sniglafylling

Saxið lauk, spínat og hvítlauk. Brúnið á pönnu, bragðbætið með salti og pipar. Setjið tvo heila snigla í hvert smjördeigsform og hellið fyllingunni yfir. Setjið rifinn mozzarellaost yfir og bakið.

Hvítlauksmauk

Léttsteikið laukinn í olíu, brúnið ekki. Bætið hvítlauk, hvítvíni og kjúklingasoði saman við. Sjóðið niður um helming, bætið þá rjómanum út í og sjóðið þar til sósan hefur þykknað. Bragðbætið með salti og pipar. Maukið vandlega í matvinnsluvél ásamt smjöri og saxaðri steinselju. Hellið yfir heitar bökurnar.

Smjördeigið stungið út.

Deigið sett í smurt form.

Hálffyllið með kjúklingafarsi.

Hér má sjá allt ferlið.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar