Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Skelfiskur og smokkfiskur með appelsínu- og stjörnuaníssósu
- Hráefni
- » 16 stk. humarhalar, skelflettir
- » 12 stk. risarækjur
- » 16 stk. hörpuskelfiskur
- » 200 g smokkfiskur
- » 100 g sykurbaunir
- » 4 msk. ólífuolía
- » Appelsínu- og stjörnuaníssósa
- » 1 dl sykur
- » 1/2 vatn
- » börkur af 1 appelsínu
- » 3 dl appelsínuþykkni
- » 1 stk. kjúklingateningur (Knorr)
- » 12-15 stk. stjörnuanís
- » 1 msk. Worschestershiresósa
Fyrir 4
Aðferð
Skerið smokkfiskinn þvert (í hringi). Þerrið smokkfisk og skelfisk. Brúnið á vel heitri pönnu, setjið sykurbaunirnar saman við, bragðbætið með salti og pipar. Skiptið á diska og hellið heitri sósunni yfir.
Appelsínu- og stjörnuaníssósaSetjið vatn, sykur og stjörnuanís í pott, sjóðið þar til verður að karamellu. Bætið kjúklingatening, appelsínuþykkni, appelsínuberki og Worcherstershiresósu saman við og sjóðið áfram við vægan hita þar til sósan þykknar á ný.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/317/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










