Laxa- og lúðurúlla með kryddjurtum

Hráefni
» 500 g laxaflök, roðflett og beinlaus
» 300 g smálúðuflök, roðflett og beinlaus
» 500 g gróft salt
» svartur pipar úr kvörn
» 6-8 tsk. matarlímsduft
» 1 pottur graslaukur, ferskur
» 30 g steinselja, fersk
» 4 msk. Provence krydd (frá Pottagöldrum)
» álpappír
» Tómatedikssósa (vinaigrette)
» 1/2 dl kjúklingasoð
» 1-2 tsk. tómatmauk
» 1/2 dl matarolía
» 1 dl rauðvínsedik
» 1 stk. laukur
» salt og pipar úr kvörn

Fyrir 6 - 8

Aðferð

Þekið lax og lúðu með grófa saltinu og svarta piparnum í fimmtán mínútur. Skolið þá fiskinn og þerrið. Stráið söxuðum graslauk, kryddi og matarlímsdufti á álpappírsörk. Leggið laxaflakið yfir með roðhliðina upp, örlítið matarlímsduft yfir og leggið síðan lúðuflakið yfir laxinn. Stráið þunnu lagi af matarlímsdufti þar yfir. Vefjið upp í rúllu og lokið vel í báða enda. Hitið bakarofn í 150°C og setjið í hann eldfast mót með vatni. Leggið laxarúlluna í vatnið og bakið í 15 mínútur, snúið rúllunni a.m.k. einu sinni. Tekið úr ofninum og kælt í 12-15 klst. Skerið rúlluna í sneiðar og berið fram með sósunni. Með þessu má einnig bera fram salat og ristað brauð.

Tómatedikssósa (vinaigrette)

Blandið öllum efnum saman í matvinnsluvél og maukið. Berið fram strax.

Leggið saman lax og lúðu. Jafnið endana.

Stráið kryddi og matarlímsdufti á álpappír.

Leggið laxaflakið ofan á og matarlímsduft yfir.

Lúðuflakið kemur næst, einnig matarlímsduft þar yfir.

Vefjið flökunum upp ...

... og vefjið álpappír að lokum utanum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar