Innbakaður spergill með mousselinesósu

Hráefni
» 24 stk. spergill, grænn
» 1 l kjúklingasoð (vatn og 2 Knorr-teningar)
» 80 g smjördeig
» 1 stk. eggjarauða
» 1 dl vatn
» Mousselinesósa
» 4 stk. eggjarauður
» 1 dl kjúklingsoð
» 4 stk. hvítlauksrif, söxuð
» 300 g smjör
» 1 dl rjómi, létt þeyttur
» salt og pipar úr kvörn

Fyrir 4

Aðferð

Snyrtið spergilinn og sjóðið í kjúklingasoði í 3-4 mín. Látið renna vel af honum. Leggið á smjördeigshelminga.

Pískið saman egg og vatn og penslið smjördeigið með blöndunni. Skerið það til helminga og síðan horn í horn. Bakið við 180°C í 15-20 mín.

Takið smjördeigsplöturnar úr ofninum, kljúfið, leggið spergilinn á annan helminginn og lokið ofan á. Berið fram með mousselinesósunni

Mousselinesósa

Pískið saman eggjarauður, kjúklingasoð og saxaðan hvítlauk. Bætið bráðnu smjörinu út í og síðan þeyttum rjóma.

Skerið í deigið langsum og þversum ...

... og síðan horn í horn.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar