Lax og hörpuskel - samleikur á vanillusósu

Hráefni
» 300 g laxaflök, roðflett og beinlaus, skorin í þunnar sneiðar, 12-14 cm. langar
» 12 stk. hörpuskelfiskur
» 12 stk. tannstönglar
» 1/2 stk. blaðlaukur í strimlum
» olía til djúpsteikingar
» Vanillusósa
» 1 stk. laukur
» 3 msk. ólífuolía
» 1 dl hvítvín, óáfengt
» 1 dl kjúklingasoð (vatn og Knorr-teningur)
» 2 stk. vanillustangir
» 4 dl rjómi
» 50 g smjör

Fyrir 4

Aðferð

Skerið blaðlaukinn í strimla, djúpsteikið í olíu og leggið á þurrt stykki svo drjúpi af.

Vefjið laxasneiðunum utan um skelfiskbitana, festið með tannstöngli. Snöggsteikið í olíu, bragðbætið með salti og pipar. Tannstöngullinn fjarlægður og fiskurinn settur á diska. Leggið djúpsteiktan blaðlauk yfir stykkin og berið fram með vanillusósunni.

Vanillusósa

Saxið laukinn og léttsteikið í olíu, bætið hvítvíni og kjúklingasoði á pönnuna og sjóðið niður um 3/4. Bætið þá rjóma saman við og skafið vanillustangirnar yfir. Sjóðið þar til rjóminn þykknar, pískið þá bráðnu smjörinu saman við og bragðbætið með salti ef þurfa þykir.

Annað meðlæti

Berið fram með ristuðu brauði og smjöri.

Flakið roðflett ...

... beinhreinsað með lítilli töng.

Skerið í þunnar sneiðar eftir endilöngu ...

... og vefjið utan um hörpuskelina.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar