Marineraður lax í eplasafa og kóríander

Hráefni
» 500 g lax, roðflettur og beinlaus
» Marinering
» 1 msk. gróft salt
» 2 msk. sykur
» 6 msk. kóríanderlauf, söxuð
» 3 dl eplasafi
» 1 dl kjúklingasoð, kælt (vatn og Knorr-teningur)
» Sósa
» 2,5 dl eplasafi
» 2 tsk. sítrónusafi
» 2 tsk. sesamfræ
» Skraut
» 12-16 stk. kóríandergreinar, ferskar

Fyrir 4

Aðferð

Blandið saman salti, sykri, kóríanderlaufum, eplasafa og kældu kjúklingasoði. Leggið laxinn í marineringuna í 16-18 klst. Geymið í kæli. Skerið síðan í þunnar sneiðar og leggið í kross á diska með kóríandergrein á milli. Berið fram með sósu og ristuðu brauði.

Sósa

Brúnið sesamfræin á heitri, þurri pönnu. Blandið síðan öllu saman og látið standa í 5-6 klst. fyrir notkun.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar