Silungur með grænum spergilstrimlum

Hráefni
» 400 g silungsflök, roðflett og beinlaus
» 12 stk. grænn spergill
» 3-4 msk. ólífuolía til steikingar
» 60 g smjör til steikingar
» Sósa
» 3 msk. ólífuolía
» 1 stk. laukur
» 3 stk. sveppir
» 1 tsk. timian
» 1 msk. steinselja
» 2-1/2 dl kjúklingasoð
» 3 dl rjómi
» 1 msk. sítrónusafi
» 6 msk. graslaukur
» 100 g smjör
» salt og svartur pipar úr kvörn

Fyrir 4

Aðferð

Steikið silunginn á báðum hliðum í heitri olíu, bragðbætið með salti og pipar. Bætið smjörinu á pönnuna undir lok steikingartímans. Skiptið á diska. Sjóðið spergilinn í léttsöltu vatni í 1-2 mínútur, látið renna af þeim og leggið yfir silungsstykkin. Hellið sósu yfir þegar rétturinn er borinn fram.

Sósa

Saxið laukinn og léttsteikið í olíu ásamt sveppum og kryddi. Bætið kjúklingasoði og sítrónusafa á pönnuna og sjóðið niður um helming. Hellið þá rjómanum saman við og sjóðið þar til sósan þykknar. Setjið graslaukinn að lokum saman við og maukið í matvinnsluvél ásamt smjörinu.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar