Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Smálúða með marjoram
- Hráefni
- » 800 g smálúða, beinlaus og roðflett, í 200 g stykkjum
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Sósa og meðlæti
- » 300 g eggaldin
- » 300 g kúrbítur (zucchini)
- » 4 msk. marjoram, ferskt, saxað
- » 1 dl hvítvín, óáfengt
- » 2 msk. sítrónusafi
- » 1-1/2 dl kjúklingsoð (vatn og teningur/kraftur)
- » 1 peli rjómi
- » 3 tsk. sinnep
- » salt og pipar
Fyrir 4
Aðferð
Smálúðan pönnusteikt í heitri olíu, bragðbætt með salti og pipar. Ofnbakið síðan við 200°C í 6-8 mín. Borið fram með sósu og meðlæti.
Sósa og meðlætiSneiðið eggaldin og kúrbít eftir endilöngu (t.d. með ostaskera). Krydd, hvítvín, sítrónusafi og kjúklingasoð sett á pönnu, soðið niður um helming. Bætið þá eggaldini, kúrbít og rjóma saman við, suðan látin koma upp. Þá er sinnepinu bætt út í, það þykkir sósuna. Bragðbætið með salti og pipar ef þurfa þykir.
Annað meðlætiMeð þessu hentar vel að bera fram soðið pasta (um 200 g) að eigin vali.
Flakið roðflett og snyrt.
Flakið brotið saman.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/328/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









