Gufusoðin smálúða með perum og engifer

Hráefni
» 800 g smálúðuflök, beinlaus og roðflett, í 200 g stykkjum
» 2 dl vatn
» 1 tsk. salt
» 1 msk. sítrónusafi
» Sósa og meðlæti
» 3 msk. sólblómaolía
» 3 stk. perur
» 4 msk. rúsínur
» 200 g sykurbaunir
» 2 msk. engifer, nýr, saxaður
» 1 dl hvítvín, óáfengt
» 3 dl kjúklingasoð (vatn og teningur/kraftur)
» 100 g smjör
» Steiktar furuhnetur
» 8 msk. furuhnetur
» 1 msk. olía til steikingar

Fyrir 4

Aðferð

Gufusjóðið smálúðustykkin í léttsöltu sítrónuvatni í 6-7 mínútur. Setjið á diska. Berið fram með sósu og meðlæti ásamt steiktum furuhnetum.

Sósa og meðlæti

Flysjið perurnar og fjarlægið kjarnann. Skerið í litla báta. Hitið olíu á pönnu og snöggsteikið perur, rúsínur, sykurbaunir og engifer. Bætið hvítvíni og kjúklingasoði út í og sjóðið í 2-3 mínútur. Að síðustu fer smjörklípan í.

Steiktar furuhnetur

Steikið furuhneturnar í sólblómaolíu í 2-3 mínútur og stráið yfir fiskinn þegar hann er borinn fram.

Hollráð

Einnig má bera fram soðnar kartöflur, smáar, 3-4 stk. á mann.

Gufusjóðið flökin undir loki.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar