Smálúða með estragonsósu

Hráefni
» 800 g smálúða, beinlaus og roðflett, í 200 g stykkjum
» 3 msk. matarolía
» Sósa og meðlæti
» 1 dl hvítvín, óáfengt
» 1 dl kjúklingasoð (vatn og teningur/kraftur)
» 3 msk. estragon, ferskt, saxað
» 3 dl rjómi
» 2 msk. smjör
» 200 g strengjabaunir
» 1 haus spergilkál
» 250 g humar, skelflettur
» salt og pipar

Fyrir 4

Aðferð

Snöggsteikið smálúðuna í heitri olíu, bragðbætið með salti og pipar. Bakið í ofni við 200°C í 6-8 mínútur. Berið fram með sósu og meðlæti.

Sósa og meðlæti

Sjóðið strengjabaunir og spergilkál í 3 mínútur í léttsöltu vatni. Leggið til hliðar. Hellið hvítvíni og kjúklingasoði á pönnuna, bætið grænmeti og kryddi saman við og sjóðið niður um helming. Þá er rjómanum bætt út í og soðið þar til sósan þykknar. Humarinn settur út í og látin sjóða í 2-3 mín. Smjörinu bætt út í síðustu mínútuna. Bragðbætt með salti og pipar ef þurfa þykir. Setjið sósu undir og yfir smálúðustykkin.

Annað meðlæti

Soðin, hvít hrísgrjón henta vel með þessum rétti. Áætlið 200250 g fyrir fjóra.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar