Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Steikt smálúða með blönduðum kryddjurtum og sveppum
- Hráefni
- » 800 g smálúða, beinlaus og roðflett
- » 3 msk. matarolía
- » salt og pipar
- » Blönduð sveppasósa
- » 1-2 msk. matarolía
- » 400 g blandaðir sveppir
- » 1-2 msk. Provence krydd (frá Pottagöldrum)
- » 4 msk. steinselja
- » 150 g smjör (óbrætt)
- » 1/2 dl sítrónusafi
- » 2 dl kjúklingasoð (vatn og teningur/kraftur)
Fyrir 4
Aðferð
Snöggsteikið smálúðustykkin á pönnu, kryddið með salti og pipar og stingið í 200°C heitan ofn í 6-8 mínútur. Berið fram með sósu og soðnum kartöflum.
Blönduð sveppasósaÁ meðan er olían hituð á sömu pönnu og sveppirnir snöggsteiktir í 1 mínútu. Bætið kryddi, kjúklingasoði og sítrónusafa saman við og sjóðið í eina mínútu, þá er smjörinu bætt saman við ásamt steinselju.
Annað meðlætiBerið fram með þessum rétti soðnar, smáar kartöflur, 3-4 stk. á mann.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/331/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










