Smálúða með vínberjum, rúsínum og humri

Hráefni
» 800 g smálúðustykki, roðflett og beinlaus
» 3 msk. matarolía
» Meðlæti
» 250 g humar, skelflettur
» 4-5 msk. rúsínur
» 10 stk. belgbaunir í strimlum
» 400 g rauð og græn vínber, steinlaus
» 3 msk. matarolía
» 100-150 g smjör
» 1-2 msk. sítrónusafi
» salt og pipar

Fyrir 4

Aðferð

Snöggsteikið smálúðuna í olíu á snarpheitri pönnu, bragðbætið með salti og pipar. Stingið í 200°C heitan ofn í 6-8 mínútur.

Meðlæti

Á meðan lúðan er í ofninum er smjöri og matarolíu bætt á pönnuna. Snöggsteikið humar, ber og annað meðlæti, vætið með sítrónusafa. Bragðbætið með salti og pipar, skiptið á diska og berið fram með smálúðustykkjunum.

Annað meðlæti

Bera má fram soðnar smákartöflur með þessum rétti, 3-4 stk. á mann.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar