Gufusoðin smálúða með mangó og sykurbaunum

Hráefni
» 800 g smálúða, beinlaus og roðflett, í 200 g stykkjum
» 2 dl vatn
» 1 tsk. salt
» 1 msk. sítrónusafi
» Mangó- og sykurbaunameðlæti
» 2-3 stk. mangó, ekki of þroskuð, skorin í strimla, flysjuð
» 250 g sykurbaunir, skornar í strimla
» 3 msk. sólblómaolía
» 1 dl soja, sæt
» 3 dl kjúklingasoð (vatn og teningur/kraftur)
» 3 msk. apríkósumarmelaði
» 2 msk. maizenamjöl
» salt og pipar
» 2 msk. smjör

Fyrir 4

Aðferð

Sjóðið 2 dl af vatni með sítrónusafa og salti. Gufusjóðið smálúðustykkin í 6-7 mín. Berið fram með mangó- og sykurbaunameðlætinu og soðnum hrísgrjónum, ef vill.

Mangó- og sykurbaunameðlæti

Hitið olíu á pönnu, léttsteikið mangó og sykurbaunir í strimlum. Veltið um í mínútu eða svo. Bætið í kjúklingasoði, soja og apríkósumarmelaði. Sjóðið í aðra mínútu, þykkið með maizenamjöli. Bætið smjörinu saman við undir lokin. Bragðbætið með salti og pipar ef þurfa þykir.

Annað meðlæti

Soðin, hvít hrísgrjón henta vel með þessu. Sjóðið 200-250 g í

15-20 mínútur.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar