Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Smálúða með beikoni og hvítlaufssalati
- Hráefni
- » 800 g smálúða, roðflett og beinlaus, í 200 g stykkjum
- » 3 msk. matarolía
- » salt og pipar
- » Hvítlaufssalat með beikoni
- » 3 msk. sólblómaolía
- » 150 g beikonsneiðar
- » 2 stk. hvítlaufssalat, sneitt eftir endilöngu
- » 1-2 msk. hunang
- » 1/2 dl hvítvínsedik
- » 4 dl kjúklingsoð
- » 4 msk. maizenamjöl
- » 2-3 msk. smjör
Fyrir 4
Aðferð
Snöggsteikið smálúðuna á pönnu, bragðbætið með salti og pipar. Stingið inn í 200°C heitan ofn í 6-8 mín. Skiptið á diska og berið fram með meðlætinu.
Hvítlaufssalat með beikoniSteikið beikonið þar til það er vel stökkt. Bætið hvítlaufssalatinu á pönnuna og brúnið með beikoninu. Bætið síðan hunangi, hvítvínsediki og kjúklingasoði út á, látið suðuna koma upp og þykkið með maizenamjölinu. Bætið smjörinu saman við undir lokin.
Annað meðlætiBerið gjarnan fram með grófu brauði.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/334/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










