Pönnusteikt smálúða með fennikkusósu

Hráefni
» 800 g smálúða í stykkjum
» 3 msk. matarolía
» salt og pipar
» Fennikkusósa
» 1 stk. fennikka
» 3 dl pastasósa (t.d. Uncle Ben's)
» 1 dl hvítvín, óáfengt
» Steikt grænmeti
» 150 g spínat, ferskt
» 8 stk. belgbaunir í strimlum
» 1 msk. engifer, saxað
» 6 stk. skalotlaukar
» 3 msk. sykur
» 2 msk. kóreander, ferskt, saxað
» 2 dl kjúklingasoð
» 1 dl hvítvín, óáfengt
» 3 msk. matarolía

Fyrir 4

Aðferð

Snöggsteikið smálúðustykkin á pönnu, bragðbætið með salti og pipar og stingið í 200°C heitan ofn í 6-8 mín. Berið fram með kaldri fennikkusósu og steiktu grænmeti.

Fennikkusósa

Skerið fennikkuna í bita, setjið síðan í matvinnsluvél með öllu öðru og maukið.

Steikt grænmeti

Hitið olíuna á pönnu, snöggsteikið grænmetið. Stráið sykrinum yfir. Bætið kjúklingasoði og hvítvíni saman við og sjóðið niður.

Annað meðlæti

Soðið pasta er gott með þessum rétti. Áætlið 200-250 g fyrir fjóra.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar