Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Pönnusteikt smálúða með hvítlaukssniglum
- Hráefni
- » 800 g smálúða í stykkjum, beinlaus og roðflett
- » 3 msk. matarolía
- » salt og pipar
- » Meðlæti
- » 24 stk. sniglar
- » 10 stk. hvítlauksrif
- » 100 g smjör
- » 6 msk. steinselja, söxuð
- » 3-4 stk. gulrætur
- » 8 stk. skalotlaukur
- » 10 stk. vorlaukur
- » 30 stk. ólífur, grænar
- » 5 dl kjúklingasoð (vatn og 1 Knorr-teningur)
- » 1 dl hvítvín, óáfengt
- » 4 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
Fyrir 4
Aðferð
Snöggsteikið smálúðustykkin á pönnu, bragðbætið með salti og pipar og stingið í 200°C heitan ofn í 6-8 mín. Berið fram með snigla-, hvítlauks- og grænmetisblöndunni.
MeðlætiSkerið grænmetið í fína strimla. Bræðið smjörið á pönnu, bætið hvítlauk og sniglum út á og síðan steinselju og grænmeti. Kjúklingasoði og hvítvíni hellt yfir, látið suðuna koma upp og sjóðið í 2 mínútur. Þykkið með maizenamjöli eða sósujafnara.
Annað meðlætiBerið fram með soðnum, smáum kartöflum. Áætlið 3-4 stk. á mann.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/336/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









