Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Sítrónusoðin smálúða með grænmeti
- Hráefni
- » 800 g smálúða í bitum, roðflett og beinlaus
- » 2 dl vatn
- » 1 tsk. salt
- » 1 msk. sítrónusafi
- » Meðlæti og sósa
- » 1 bakki smámaís
- » 12 stk. vorlaukar
- » 2 stk. paprika, græn og rauð
- » 4-5 stk. sellerí stilkar
- » 1-2 stk. gulrætur
- » 3 msk. ólífuolía
- » 1 tsk. rósmarín
- » 4 dl kjúklingasoð
- » 1/2 dl sítrónusafi
- » 4 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
Fyrir 4
Aðferð
Sjóðið 2 dl af vatni með salti og sítrónusafa. Gufusjóðið smálúðubitana í 6-7 mín. Skiptið á diska og berið fram með meðlæti og sósu.
Meðlæti og sósaHreinsið vorlaukinn, sneiðið og skerið annað grænmeti í teninga, smámaísinn í strimla. Léttsteikið í olíunni. Bætið sítrónusafa og kjúklingasoði saman við ásamt rósmarín. Látið suðuna koma upp, þykkið með maizenamjöli eða sósujafnara. Sjóðið áfram í 1-2 mínútur.
Annað meðlætiBerið fram með soðnum, smáum kartöflum. Áætlið 3-4 stk. á mann.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/337/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










