Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Gratineraður karfi með blómkáli
- Hráefni
- » 800 g karfi, beinlaus og roðflettur
- » 400 g blómkál
- » 4 msk. matarolía
- » 100 g gráðaostur
- » 1 peli rjómi
- » 1 msk. smjörlíki
- » 1-2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
- » salt og pipar
- » 1/2 poki mozzarella ostur, kryddaður
Fyrir 4
Aðferð
Smyrjið eldfast mót með smjörlíki. Leggið karfastykkin þar í. Skerið blómkálið gróft og steikið í olíu á heitri pönnu. Bætið rjóma og gráðaosti saman við, látið suðuna koma upp og sjóðið þar til osturinn hefur bráðnað. Jafnið með maizenamjöli eða sósujafnara. Hellið yfir karfastykkin, stráið mozzarellaosti yfir og bakið við 200°C í 15 mínútur.
Annað meðlætiBerið fram með grófu brauði.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/338/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









