Salsakarfi

Hráefni
» 800 g karfi, beinlaus og roðflettur
» 3-4 msk. heilhveiti
» 3-4 msk. olía til steikingar
» Salsa og ólífur
» 200 g blaðlaukur, sneiddur
» 3 stk. tómatar, sneiddir
» 100 g ólífur, svartar
» 8-10 stk. hvítlauksrif, sneidd
» 1 glas salsasósa, mild

Fyrir 4

Aðferð

Veltið karfanum upp úr heilhveitinu og steikið í 3-4 mín. Snúið 2-3svar. Berið fram með salsasósu og ólífum.

Salsa og ólífur

Snöggsteikið grænmeti og hvítlauk. Hellið sósunni saman við og hitið í gegn.

Annað meðlæti

Pasta hentar vel með þessum rétti. Sjóðið 200-250 g í léttsöltu vatni með smáslettu af matarolíu. Rifinn parmesanostur er punkturinn yfir i-ið!

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar