Möndlusteiktur karfi með rækjum

Hráefni
» 800 g karfi, beinlaus og roðflettur
» 3-4 msk. olía
» 200 g möndluflögur
» 3 stk. egg
» salt og pipar
» Meðlæti
» 400 g rækjur
» 100 g möndluflögur
» 200 g smjör
» 2 msk. sítrónusafi

Fyrir 4

Aðferð

Þeytið eggin með pískara, bragðbætið með salti og pipar. Veltið karfaflökunum upp úr hrærunni og síðan upp úr möndluflögunum. Léttbrúnið í olíu, gætið þess að hitinn sé ekki of hár - það brennir möndlurnar. Stingið í 180°C heitan ofn í 4-5 mín. Berið fram með smjörsteiktum möndluflögum og sítrónukrydduðum rækjum.

Meðlæti

Léttbrúnið smjörið á pönnunni (ekki hreinsa af henni). Bætið möndlunum út á og léttbrúnið. Þá eru rækjurnar settar saman við. Kryddað með sítrónusafa.

Annað meðlæti

Gott að bera fram með þessu smáar, soðnar kartöflur. Reiknið með 3-4 stk. á mann.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar