Laxasteik með kúrbítssósu
- Hráefni
- » 1 kg laxaflak
- » 3-4 msk. matarolía til steikingar
- » salt og pipar
- » Kúrbítsrjómasósa með laxi
- » 2 stk. kúrbítur (zucchini)
- » 150 g reyktur lax
- » 4-5 dl rjómi
- » 2-3 msk. maizenamjöl eða sósujafnari
- » salt og pipar
Fyrir 4
Aðferð
Beinhreinsið og snyrtið laxinn, skafið hreistrið með beittum hníf. Skerið í fjórar 200 g steikur. Steikið síðan á roðhliðinni þar til roðið er stökkt. Snúið þá við og snöggsteikið, stingið síðan í 200°C heitan ofn í 8-10 mínútur. Kryddið með salti og pipar. Berið fram með kúrbítsrjómasósu með reyktum laxi.
Kúrbítsrjómasósa með laxiSkerið kúrbítinn í sneiðar og reykta laxinn í strimla. Setjið kúrbít ásamt rjóma og reyktum laxi á pönnuna og látið suðuna koma upp. Jafnið með sósujafnara. Kryddið með salti og pipar.
Annað meðlætiVel hentar að bera fram með þessu smáar, soðnar kartöflur. Reiknið með 3-4 stk. á mann. Einnig er gott er að borða með réttinum steikt laxaroð sem hefur verið afhreistrað.
Laxinn afhreistraður með beittum hníf.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










